Hotel Neptuno er vel staðsett 4 stjörnu hótel um 300 metra frá ströndinni í Roquetas de Mar. Í næsta nágrenni við hótelið er fjölbreytt úrval verslana og margir góðir veitingastaðir. Á svæðinu má einnig finna úrvals golfvelli, vatnsrennibrautargarð og fleira spennandi. Þetta hótel hentar vel pörum og fjölskyldum.
GISTING
Smekklega innréttuð, björt herbergi. Hótelið er byggt í U þar sem herbergin eru fyrir miðju og íbúðirnar í sér álmu. Herbergin eru nokkuð rúmgóð. Þau henta ágætlega 2 fullorðnum og 1 eða 2 litlum börnum. Í öllum herbergjum er lítill ískápur og sjónvarp. Íbúðirnar henta vel þeim sem hyggjast dvelja í lengri tíma á hótelinu eða barnmargar fjölskyldur. Í íbúðunum er ískápur, frystir, brauðrist, kaffivél, sjónvarp og eldavélahellur. Í öllum íbúðum er borðstofa og útdreginn svefnsófi í stofu. Leiga á barnarúmi kostar 5 evrur á dag. Hægt er að leigja öryggishólf fyrir um 15 evrur á viku. Frítt þráðlaust internet er á hótelinu. Hótelið býður einnig upp á þann möguleika að tengjast netinu í vistarverum gegn vægu gjaldi. ATH að tvíbýli er tveggja manna herbergi með rúmum og sófa sem hægt er að breyta í svefnsófa.
AÐSTAÐA
Á hótelinu er mjög góð sameiginleg aðstaða með flottum bar og huggulegum matsal með hlaðborði. Garðurinn er vel skipulagður og fallegur með stórri djúpri sundlaug með tveim rennibrautum og barnalaug. Hótelið skaffar gestum sínum handklæði þeim að kostnaðarlausu en þó þarf að framvísa tryggingu. Á Neptuno er einnig sundlaugabar, líkamsræktarsalur, gufubað, nuddpottar og heilsulind. Gestamóttaka hótelsins er opin allan sólarhringinn.
AFÞREYING
Á Hotel Neptuno er skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa og barnaklúbbur. Skemmtidagskráin er árstíðarbundinn en þó er ýmsilegt í boði allan ársins hring. Á sumrin er skemmtidagskrá öll kvöld fyrir alla fjölskylduna. Hótelið er um 300 metra á frá Playa Serena golfklúbbnum og í nálægð við Almerimar, La Envia og Alborán golfklúbbana.
VEITINGASTAÐIR
Einfaldur og snyrtilegur veitingastaður með hlaðborð sem þykir gott. Á hótelinu má einnig finna huggulega kaffiteríu.
FYRIR BÖRNIN
Barnaklúbburinn nefnist Tuno er starfræktur frá 19. júní - 13. september. Þar getur yngsta kynslóðin skemmt sér og eignast nýja vini í margskonar dagskrá undir eftirliti starfsmanna. Á daginn er ýmisleg fjör fyrir börnin og á kvöldin er skemmtidagskrá fyrir börn og fullorðna. Hótelið býður einnig upp á sérstaka dagskrá fyrir unglinga á sumrin.
STAÐSETNING
Hótelið er vel staðsett við hliðina á Arena Center um 300 metra frá ströndinni.
AÐBÚNAÐUR Á HOTEL NEPTUNO
Lyftur
Útisundlaug
Barnasundlaug
Loftkæling á herbergjum
Skemmtikraftar
Krakkaklúbbur
Kvöldskemmtanir
Frítt þráðlaust internet
Heilsulind
Bar
Kaffitería
Þvottahús
Töskugeymsla
Upplýsingar
Paseo Central, 45, 04740 Roquetas de Mar, Almería, Spánn
Kort