Playa de las Americas

Familygarden Compostela Beach er þriggja stjörnu íbúðahótel á besta stað á Playa de las Americas ströndinni. Verslunarmiðstöðin Oasis er staðsett rétt við hótelið. Í 2 km akstursfjarlægð frá hótelinu er stærsti vatnagarður Evrópu Siam Park. Allt í kring er fjöldi verslana, veitinga- og kaffihúsa. Aðeins er um 100 metra gangur á Las Vistas ströndina. Hótelgarður með sundlaug, barnalaug og sólbaðsaðstöðu. Á hótelinu er veitingastaður sem er opinn frá morgni til kvölds. Léttur snakkbar er í garðinum, leikherbergi fyrir börnin auk matvöruverslunar þar sem hægt er að gera smærri innkaup. Íbúðirnar eru með síma, sjónvarpi, kaffivél, brauðrist og ísskáp. Ekki er loftkæling í íbúðunum. Hægt er að leigja öryggishólf. Hótelið hentar illa fyrir fólk sem er slæmt til gangs, þar sem fara þarf niður tröppur frá fyrstu hæð niður í hótelgarðinn og á veitingastaðinn. Wifi er á sameiginlegum svæðum gegn gjaldi.Val er um íbúð án fæðis, með morgunverði eða hálfu fæði.

 

 

Upplýsingar

Avenida Litoral, 8 38660 Playa de las Americas Tenerife Spain

Kort