Hótel Sun Palace Albir er gott 4ra stjörnu hótel staðsett u.þ.b. 1 km., frá ströndinni í Albir og rétt við Serra Celada þjóðgarðinn. Glæsilegt útsýni frá hótelinu yfir bæinn og út á strönd. Þetta hótel hentar ekki þeim sem eiga erfitt með gang.
GISTING
Herbergin eru rúmgóð og með svölum. Á herbergjum er loftkæling, sími, minibar,gervihnattasjónvarp og Wi-Fi. Öryggishólf (gegn gjaldi). Baðherbergi með baðkari eða sturtu, snyrtispegil, hreinlætisvörur og hárþurrku..
AÐSTAÐA
Í garðinum er góð sundlaug og barnalaug ásamt sólbaðsaðstöðu og sundlaugarbar. Ganga þarf brekkur niður að strönd en einnig eru í boði rúturferðir frá hótelinu niður á strönd, gestamóttaka upplýsir um ferðir. Glæsileg heilsurækt, Tahara Spa, er á hótelinu þar sem m.a. en boðið uppá nudd, snyrtistofur, innisundlaug, sauna. Lítil líkamsræktarstöð.
VEITINGAR
Glæsilegur matsalur, "El Far" með hlaðborðsveitingar, Rick´s Cafeteria, fallegt útsýni fá svölum og Rooftop 360°verönd, bar þar sem hægt er að njóta drykkja, tónlistar og útsýnis.
AÐBÚNAÐUR Á HOTEL SUN PALACE ALBIR
Tvíbýli
Baðherbergi
Gervihnattasjónvarp
Wi-Fi
Minibar
Sími
Öryggishólf(gegn gjaldi)
Svalir/verönd
Hárþurrka
Útisundlaug
Sólarverönd
Stutt í golf
Líkamsrækt
Heilsulind
Gufubað
Frítt internet
Veitingastaður
Bar
Snarlbar
Sólarhringsmóttaka
ATH
Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og gististaða á Benidorm, Albir, Altea og Calpe á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með nokkra daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.
Upplýsingar
Gestionado por BENI-97 S.L. C\ Hércules, 1 - 03581 ALFAZ DEL PI Albir. Spain
Kort