Hótel Mediterraneo er mjög gott 4ra stjörnu hótel, staðsett í 900 m fjarlægð frá Levante ströndinni. Glæsilegur garður með stórum sundlaugum og mjög góðri sólbaðsaðstöðu. Góð herbergi með loftkælingu. Á hótelinu er gott aðgengi fyrir hjólastóla.
GISTING
Alls eru 177 góð herbergi á hótelinu búin sjónvarpi, síma, loftkælingu, mini-bar og öryggishólfi(gegn gjaldi). Hárþurrka er á baðherbergi. Herbergin eru þrifin daglega og þá er einnig skipt um handklæði.
AÐSTAÐA
Góður garður með sundlaug og sólbaðsaðstöðu. Þar er einnig að finna barnasundlaug og leikvöll. Líkamsræktaraðstaða, gufubað og heitir pottar.
AFÞREYING
Á hótelinu er skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Líf og fjör er í garðinum yfir daginn og reglulega er slegið upp dansi í garðinum á kvöldin.
VEITINGAR
Á hótelinu er veitingastaður með hlaðborð sem framreiðir morgun-, hádegis- og kvöldverð. Reglulega eru þemakvöld. Snarlbar er við sundlaugina. Hægt er að velja um herbergi með hálfu- eða fullu fæði eða öllu inniföldu.
FYRIR BÖRNIN
Skemmtilegt hótel fyrir börn. Barnaklúbbur fyrir 5-12 ára krakka og sérstakt leiksvæði fyrir börn. Á kvöldin er mini-diskó.
STAÐSETNING
Hótelið er vel staðsett í Rincon de Loix svæðinu á Benidorm, stutt frá Benidorm Palace og í 15-20 mínútna göngu frá Levante ströndinni.
AÐBÚNAÐUR Á HOTEL MEDITERRANEO
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Snarlbar
Líkamsrækt
Barnaklúbbur
Leikvöllur
Ping-pong
Mini-diskó
Skemmtidagskrá
Dans
Veitingastaður
Tvíbýli
Baðherbergi
Svalir/verönd
Loftkæling
Kynding
Upplýsingar
Av. Dr. Severo Ochoa, 16, 03503 Benidorm, Alicante, Spánn
Kort