Montemar er vel staðsett íbúðagisting á Ensku ströndinni. Fjölmargar verslanir, veitingastaðir og barir í nágrenninu. Einfaldar en rúmgóðar íbúðir og í garðinum er góð sólbaðsaðstaða. Montemar er 3ja hæða, ekki er lyfta á Montemar.
GISTING
Íbúðirnar eru heldur einfaldar en rúmgóðar. Val er um íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum. Í öllum íbúðum er stofa, eldhús og baðherbergi. Hægt er að leigja aðgang að gervihnattasjónvarpi og öryggishólfi gegn gjaldi. Allar íbúður eru með rúmgóðum svölum. Gestir geta keypt aðgang að þráðlausu interneti til að nota inn í íbúðunum.
AÐSTAÐA
Sundlaugargarðurinn var tekin í gegn sumarið 2016, er með góðri sólbaðsaðstöðu, sundlaug og barnalaug. Ath. engin snarlbar er við sundlaugina. Tennisvöllur, þvottaaðstaða með þvottavél og þurrkara (gegn gjaldi). Bílastæði eru við hótelið og kosta þau um 3 evrur á dag. Athugið að ekki er lyfta á Montemar og íbúðirnar eru á 1, 2 og 3 hæð. Gestamóttakan er á jarðhæð og er opin allan sólarhringinn.
FYRIR BÖRNIN
Leikvöllur og barnalaug í garðinum fyrir börnin á Montemar.
STAÐSETNING
Montemar er staðsett á einum eftirsóttasta stað Ensku strandarinnar, við götuna Avenida Madrid og rétt hjá Kasbah.
AÐBÚNAÐUR Á MONTEMAR
Íbúðir
Eldhús
Baðherbergi
Svalir
Frítt internet í sameiginlegu rými
Þrif
Útilaug
Sólbaðsaðstaða
Bílastæði (gegn gjaldi)
Sólarhringsmóttaka
Leikvöllur
Þvottavél á jarðhæð gegn gjaldi
ATH
Upplýsingar
San Cristobal de la Laguna 3, Playa de Ingles, Gran Canaria
Kort