Hótel Medplaya Agir er ágætt 4ra stjörnu hótel vel staðsett um 100 m frá Levante ströndinni. Um 10 mín gangur er í gamla bæinn á Benidorm. Á hótelinu er heilsulind ásamt líkamsræktarsal. Hótelið er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.
GISTING
Herbergin eru lítil og hafa svalir sem snúa annars vegar í átt að ströndinni með útsýni yfir götuna Mediterraneo eða út í bakgarð, gervihnattarsjónvarp og loftkælingu. Hægt er að velja um tvíbýli eða junior svítu en svíturnar hafa tvíbreytt rúm, svefnsófa, spa baðkar og hárþurrku svo eitthvað sé nefnt.
AÐSTAÐA
Sundlaugin er staðsett á þakinu á hótelinu og því hægt að njóta útsýnisins. Hægt er að njóta vel í tyrkneska baðinu, á slökunarsvæðinu eða sólarveröndinni. Hægt er að panta sér nudd gegn aukagjaldi. Einnig er líkamsrækt á staðnum.
AFÞREYING
Á sumrin er lifandi tónlist á hótelinu en svo er alltaf stutt í lífið á Benidorm og því ættu allir að finna sér eitthvað við sitt hæfi.
VEITINGAR
A la carte veitingastaður er á hótelinu og eins kaffihús. Hægt er að kaupa sér snarl á snarlbarnum og drykki á barnum.
STAÐSETNING
Gististaðurinn er staðsettur stutt frá Levante ströndinni, gamla bænum og stutt í alla afþreyingu.
AÐBÚNAÐUR Á MEDPLAYA AGIR
Útisundlaug
Lifandi tónlist
A la carte veitingastaður
Frítt internet
Loftkæling
Sími
Sjónvarp
Sólbaðsaðstaða
Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og gististaða á Benidorm, Albir, Altea og Calpe á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með nokkra daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.
Upplýsingar
11 Avda. Mediterráneo 03503 Benidorm ALICANTE
Kort