Meloneras svæðið er þekkt fyrir sínar fallegu strendur og sérstæðu sandhóla. Hér er rólegt andrúmsloft og tilvalið að taka göngu um ströndina, fá sér drykk og horfa yfir hafið, lifa og njóta.
Sheraton Salobre Golf Resort er flott 5 stjörnu hótel staðsett sunnarlega á Kanarí. Tveir 18-holu golfvellir eru nálægt hótelinu. Maspalomas ströndin er í 5 km fjarlægð frá hótelinu.
GISTING
Öll herbergin eru með sérverönd eða svölum með útsýni yfir golfvöllinn og fjöllin í kring. Á herbergjum er öryggishólf, minibar, hraðsuðuketill, sjónvarp, þráðlaust net, baðsloppar, inniskór,
þráðlaust net og loftkæling.
AÐSTAÐA
Á hótelinu er góður garður með fimm sundlaugum og einni barnalaug. Einnig er heilsulind með upphitaðri sundlaug. Í heilsulindinni er úrval af gufuböðum, líkamsræktaraðstaða og tyrkneskt bað auk þess eru nudd og aðrar meðferðir í boði fyrir gesti.
AFÞREYING
Þetta er sérlega gott hótel fyrir kylfinga sem vilja lúxus.
VEITINGAR
Á Sheraton Salobre Golf Resort eru þrír veitingastaðir og þrír árstíðarbundnir barir. Perenquén veitingastaðurinn bíður upp á tapas-matseðil sem var hannaður af kokki sem hlotið hefur Michelin-stjörnu.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett sunnarlega á Kanarí við hliðina á tveimur 18 holu golfvöllum. Maspalomas ströndin er í 5 km fjarlægð frá hótelinu og boðið er upp á fría skutluþjónustu þangað.
AÐBÚNAÐUR Á SALOBRE HOTEL RESORT & SERENITY
Útisundlaug
Barnalaug
Sólbaðsaðstaða
Stutt í golfvöll
Frí skutla á strönd
Heilsulind
Upphituð innilaug(í heilsulind)
Líkmasrækt
Tyrkneskt bað
Nudd
Leiksvæði
Veitingastaður(hlaðborð)
Veitingastaður(à la carte)
Frítt internet
Loftræsting
Svalir/verönd
Baðherbergi
Bílastæði
Upplýsingar
Calle Swing, s/n, 35128, Las Palmas, Spánn
Kort