Oro Blanco er einföld 2 stjörnu íbúðargisting, staðsett við jaðar Playa de las Americas. Lítill garður með sundlaug og sólbaðsaðstöðu.
GISTING
Gestir geta valið um íbúðir með einu 2 eða 3 svefnherbergjum. Íbúðirnar hafa allar sjónvarp, öryggishólf (gegn aukagjaldi), brauðrist, verönd og lítið eldhús. ATH að ekki er loftkæling í íbúðunum.
AÐSTAÐA
Garðurinn er ekki stór, en þar er að finna 1 sundlaug ásamt sólbaðsaðstöðu og á 3 hæð er svo önnur sólbaðsaðstaða eða „solarium“. Sundlaugarbar og kaffihús eru við laugina með fríu interneti. Þvottaaðstaða er á hótelinu gegn gjaldi. Hótelið er staðsett við umferðargötu og geta íbúðirnar snúið að götunni eða garðinum. Ekki er hægt að panta hvernig íbúðirnar snúa. Við komu þarf að borga 30 evru tryggingargjald fyrir hverja íbúð sem fæst endurgreitt við brottför.
STAÐSETNING
Rétt hjá golfvellinum. Um það bil 800 metrar í ströndina af hótelinu.
AÐBÚNAÐUR Á ORO BLANCO
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum
Sjónvarp
Öryggishólf (gegn gjaldi)
Baðherbergi
Lítið eldhús
Sundlaugarbar
Frítt internet (á ákveðnum svæðum)
Þvottaðastaða
ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar.
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.
Upplýsingar
Av. Arquitecto Gómez Cuesta, 12, 38650 Arona, Santa Cruz de Tenerife, Spain
Kort