DON GREGORY by Dunas er ágætt 4ra stjörnu hótel við ströndina í San Agustin, eitt af frábærum „strandhótelum“ á Gran Kanarí en hótelið liggur alveg við Las Burras ströndina. Verslanir, veitingahús og barir í næsta nágrenni. Garður með sundlaug og sólbekkjum. Nær öll herbergi hafa sjávarsýn. Hótelið er einungis fyrir 16 ára og eldri.
GISTING
Stór og björt, loftkæld herbergi með sjónvarpi, baðherbergi og svölum eða verönd. Fallegt útsýni er yfir ströndina og sjóinn. Hægt er að óska eftir mini-bar. Premium tvíbýli með sjávarsýn er á 7. - 8. hæð. Premium tvíbýli TOP með sjávarsýn er á 9. hæð. Í Premium herbergjum eru baðsloppar, inniskór, aðgangur að einka verönd, te/kaffisett og auka þjónusta í boði. Í öllum herbergjum er frítt internet.
AÐSTAÐA
Lítill, snyrtilegur garður með sundlaug, sólbekkjum og sólhlífum. Úr garðinum er fallegt útsýni út að ströndinni og sjónum. Sundlaugin er upphituð yfir vetrarmánuðina. Hægt er að fá handklæði til afnota í garðinum gegn tryggingu. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða og heilsulind þar sem hægt er að fá nudd og margskonar meðferðir gegn gjaldi. Á hótelinu er einnig sérstakt svæði þar sem gestir geta baðað sig í sólinni án sundfata.
AFÞREYING
Skemmtidagskrá: Tvisvar í viku er lifandi tónlist fyrir gesti að kvöldlagi. Spa er á hótelinu og stutt er í ýmiskonar vatnaíþróttir.
VEITINGAR
Í gestamóttöku er mjög fallegur veitingastaður sem nýlega hefur verið uppgerður. Á hótelinu er einnig píanóbar og sundlaugarbar.
Gestir hótelsins sem eru í "allt innifalið" og gestir sem eru í Premium herbergjum með hálft fæði, fá einn frían dinner á The Burras Beach House ásamt völdum drykkjum. Aðrir gestir fá 20% afslátt af veitingum á The Burras Beach House. Panta þarf fyrirfram í gestamóttöku hótelsins.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett við ströndina í San Agustin við Las Burras ströndina á suðurhluta Kanarí. Verslunarmiðstöð San Agustin er beint á móti hótelinu og 25 km í flugvöllinn.
San Agustin er rólegur strandbær á suðurhluta eyjunnar Gran Canaria. Þetta svæði einkennist af rólegu umhverfi og er frábært fyrir fólk sem er að leita sér að hvíld. Góð strönd er við San Agustin og Don Gregory er staðsett einmitt við þessa strönd. Göngustígur er meðfram sjónum þar sem hægt er að ganga yfir á Ensku ströndina.
AÐBÚNAÐUR Á DUNAS DON GREGORY
Útisundlaug
Sólbekkir
Stutt í strönd
Sólhlífar
Nektarverönd
Svalir eða verönd
Hárþurrka
Baðkar eða sturta
Sjónvarp
Internet
Loftkæling
Tennisvöllur
Leikjaherbergi
Hjólaleiga
Skemmtikraftar
Lifandi tónlist
Snarlbar
Hlaðborðsveitingastaður
Barir
Sólarhringsmóttaka
ATH
Upplýsingar
Avda las Dalias 11, 3500 San Augustin, Gran Canaria
Kort