Hotel Seaside Sandy Beach er frábært 4ra stjörnu hótel miðsvæðis á Ensku ströndinni og afar stutt er í hinar frægu sandöldur. Fallegur, gróðursæll garður með hringlaga sundlaug og sólbekkjum. Við hótelið er einnig gras tennisvöllur með flóðljósum. Skemmtilegt hótel fyrir alla fjölskylduna.
GISTING
Herbergin eru rúmgóð og loftkæld með gervihnattasjónvarpi og svölum eða verönd, gervihnattasjónvarp, þráðlaust net, minibar, öryggishólf (aukagjald) Herbergin eru annað hvort með garð- eða sundlaugasýn og eru þau á 3 - 10 hæð.
Hárþurrka og baðsloppar eru á baðherbergjum.
AÐSTAÐA
Fallegur garður með sundlaug og aðstöðu til sólbaða. Sundlaugin er með saltvatni og upphituð. Í garðinum er einnig barnalaug. Bar er í garði hótelsins þar sem hægt er að fá sér drykk eða snarl yfir daginn. Við hótelið er gras tennisvöllur með flóðljósum þannig að hægt sé að spila á kvöldin. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða með verönd þannig bæði er hægt að æfa inni eða úti. Á ákveðnum svæðum hótelsins geta gestir sólað sig án klæða.
AFÞREYING
Hægt er að leigja hjól eða fara í leiki svo sem boccia, ping pong eða spila skák. Á hótelbarnum er gjarnan lifandi tónlist.
VEITINGAR
Á hótelinu er veitingastaður með fjölbreytt hlaðborð sem framreiðir góðgæti innblásið frá öllum heimshornum. Stór og falleg verönd er hjá veitingastaðnum þar sem gestir geta gætt sér á morgun-, hádegis- og kvöldverði. Við sundlaugina er bar þar sem gestir geta kælt sig niður á heitum dögum. Á hótelinu er bakarí með allsskonar bakkelsi og gómsætu brauði.
FYRIR BÖRNIN
Skemmtilegt hótel fyrir alla fjölskylduna. Á hótelinu er barnalaug og ungbarnalaug. Starfræktur er barnaklúbbur á hótelinu fyrir 4-12 ára (einungis á háanna tímum).
AÐBÚNAÐUR Á SEASIDE SANDY BEACH
Útilaug
Barnalaug
Ungbarnalaug
Sundlaugabar
Tennisvöllur
Líkamsrækt
Heilsulind
Barnadagskrá
Lifandi tónlist
Hlaðborðsveitingastaður
Loftkæling
Frítt internet
Svalir/verönd
Nektarverönd
Hjólaleiga
Upplýsingar
Avda. Menceyes s/n, Playa Del Inglés, Gran Canaria
Kort