Hotel Bull Escorial & Spa er 3ja stjörnu hótel á Ensku ströndinni. Hótelið er við Italíu götuna, staðsett nálægt ströndinni. Gróðursæll garður með sundlaug og barnalaug.
GISTING
Snyrtileg herbergi með svölum eða verönd. Sjónvarp og frítt internet er á herbergjum. Athugið að ekki er loftkæling á herbergjum heldur vifta. Hægt er að fá loftkælingu og afnot af öryggishólfi, gegn gjaldi. Hægt er að bóka svokölluð Superior herbergi með útsýni.
AÐSTAÐA
Gróðursæll garður með sundlaug, barnalaug og sólbaðsaðstöðu með sólhlífum og bekkjum. Í garðinum er einnig sundlaugabar þar sem gestir geta vökvað sig í sólinni. Heilsurækt og heilsulind er á hótelinu fyrir þá sem vilja láta dekra við sig og slaka á í finnskri saunu, gufubaði eða fljóta í saltvatnslaug(gegn gjaldi).
AFÞREYING
Ýmis afþreying er í boði svo sem pool, leikjaherbergi, tennis og mini-golf.
VEITINGAR
Á Hotel Escorial er veitingastaður með hlaðborð og bar.
AÐBÚNAÐUR Á HOTEL ESCORIAL & SPA
Útisundlaug
Barnalaug
Leikvöllur
Sólbaðsaðstaða
Pool
Leikjaherbergi
Hlaðborðsveitingstaður
Bar
Vifta
Baðherbergi
Sjónvarp
Svalir/verönd
ATH
Upplýsingar
Avda. Italia Playa del Ingles, Spain
Kort