Tenerife Sur er 3ja stjörnu (að okkar mati 2-3 stjörnur) íbúðahótel í Los Cristianos um 10 mínútna gangi frá Los Cristianos ströndinni. Við hótelið er stór sundlaugagarður með sundlaug og góðri aðstöðu til sólbaða. Á hótelinu er einnig leiksvæði fyrir börn og lítil heilsurækt. Tilvalið fyrir fjölskyldur. Veitingastaður og bar er á hótelinu.
GISTING
Snyrtilegar íbúðir með einu svefnherbergi, stofu, sjónvarpi og litlum eldhúskrók með ísskáp og brauðrist. Íbúðirnar henta vel þremur fullorðnum eða tveimur fullorðnum og tveimur börnum. Í svefnherberginu er tvíbreitt rúm og í stofunni er svefnsófi. Á öllum herbergjum eru svalir eða veröld. Í einni byggingunni er lyfta, í öðrum tengibyggingum eru ekki lyftur. Þær eru allt að þrjár hæðir.
AÐSTAÐA
Stór og góður garður er í miðju hótelsins. Í sundlaugagarðinum er útisundlaug og fín aðstaða til sólbaða. Móttakan er opin allan sólarhringinn. Leikjaherbergi og sérstakt leiksvæði fyrir börn. Gestir geta farið í nudd og gufubað gegn gjaldi. Hægt er að kaupa aðgang að þráðlausu interneti. Á hótelinu er skvass-völlur og lítil búð.
VEITINGASTAÐIR
Á hótelinu er veitingastaður og bar. Gestir geta valið um gistingu án fæðis, með morgunverð eða í hálfu fæði
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett í Los Cristianos og um 10 mínútna gangur er að Los Cristianos ströndinni og miðbæ Los Cristianos þar sem finna má úrval af frábærum veitingastöðum, börum og kaffihúsum. Los Cristianos er sjarmerandi gamall bær á suðurhluta eyjunnar og í um 20 mínútna gangi frá Playa de Las Americas þar sem margt er um að vera allt árið um kring.
AÐBÚNAÐUR Á TENERIFE SUR
Án fæðis/morgunverður/hálft fæði
Íbúðir með einu svefnherbergi
Svefnsófi
Sjónvarp
Svalir/verönd
Lítið eldhús
Salerni
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Sólarhringsmóttaka
Veitingastaður
Svass-völlur
Bar
Leikjaherbergi
Leikvöllur fyrir börn
Upplýsingar
Av. Ámsterdam, 7, 38650 Arona, Santa Cruz de Tenerife, Spánn
Kort