Taurito

Mogan Princess & Beach Club er gott 4ra stjörnu hótel staðsett uppi í hlíðum Taurito, sem er lítill dalur við fallega strönd. Hótelið hentar vel fjölskyldufólki og ungum pörum. Fallegt útsýni er úr sundlaugagarðinum yfir hafið og kvöldskemmtun í boði öll kvöld. Rúta fer einu sinni á dag frá hótelinu yfir til Puerto de Mogan og reglulega yfir daginn niður á ströndina. 

GISTING 

Tvíbýlin eru smekklega innréttuð, einföld og snyrtileg flest með fallegt útsýni yfir hafið eða dalinn. Þau eru loftkæld og þar er að finna svalir eða verönd, baðherbergi með hárþurrku og sjónvarp. Fjölskylduherbergin og Junior svíturnar eru stærri ásamt því að Junior svíturnar eru nýlega uppgerðar með aðskildri stofu og svefnherbergi. Herbergin eru þrifin daglega og skipt er á rúmum tvisvar í viku. 

AÐSTAÐA 

Hótelið er smekklega innréttað uppi í fjöllunum við Taurito dalinn. Garðurinn er einfaldur með fallegu útsýni yfir hafið. Þar er að finna stóra sundlaug, barnalaug og góða sólbaðsaðstöðu. Í efri garði hótelsins er „slökunar svæði“ einungis ætlað fullorðnum. Hótelið er einnig með séraðstöðu við ströndina. 

AFÞREYING 

Öll kvöld er í boði kvöldskemmtun fyrir alla fjölskylduna. 

VEITINGAR 

Í boði er svokallað „allt innifalið“ en þá geta gestir snætt morgun-, hádegis- og kvöldverð á hótelinu ásamt innlendum drykkjum og snarli milli mála.

FYRIR BÖRNIN 

Í garðinum er barnalaug og á hótelinu er starfræktur barnaklúbbur. 

STAÐSETNING 

Hótelið er staðsett í fjöllunum fyrir ofan Taurito dalinn og er þaðan dásamlegt útsýni yfir hafið. Taurito er lítill dalur við fallega vík sem er í raun algjör ferðamannaparadís fyrir börn og fullorðna. Um það bil átta hótel eru staðsett í dalnum og fjöllunum í kring. Í dalsmynninu er að finna vatnsrennibrautagarð, mini-golf, tennis, bowling ásamt útisviði með skemmtun öll kvöld og lifandi tónlist. Við ströndina er hægt að stunda ýmsar sjóíþróttir og fara í köfunarskóla. Þar er einnig að finna verslanir og veitingastaði.  Rútur ganga frá hótelinu allan daginn niður á strönd og einu sinni á dag yfir til Puerto de Mogan. 

 

AÐBÚNAÐUR Á MOGAN PRINCESS & BEACH CLUB 
Útisundlaug 
 
Veitingastaður 
 
Bar 
 
Barnalaug 
 
Barnaklúbbur 
 
Loftkæling 
 
Kvöldskemmtun 
 
Rútur 
 
Sólarhringsmóttaka
 
Internethorn 
 
Mini-diskó
 
ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 
 
Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.
 
Skemmtidagskrá getur verið ártíðarbundin.

 

Upplýsingar

C/ Albaicin 17, Urb. Taurito 35138 Mogán, Gran Canaria

Kort