Sunconfort Aqua Azul nýlega uppgert 4ra stjörnu hótel og eitt vinsælasta hótelið í Benidorm vegna staðsetningar og góðrar þjónustu. Hótelið er aðeins 400 metrum frá strönd og stutt frá gamla bænum. Frábær valkostur og eingöngu fyrir fullorðna. Hótelið er eingöngu fyrir 16 ára og eldri.
GISTING
Herbergin eru fallega innréttuð, björt, rúmgóð og vel útbúin. Falleg hönnun, svalir, baðherbergi, loftræsting og sjónvarp ásamt öryggishólfi.
AÐSTAÐA
Hótelið er með fallegan garð sem umlykur sundlaugina. Þar er góð sólbaðsaðstaða og sundlaugarbar. Einnig er vel búin líkamsrækt á hótelinu með einkaþjálfara.
VEITINGAR
Hlaðborðið er með loftræstingu og útsýni yfir sundlaugina og garðinn. Á barnum er nútímaleg setustofa og þar er hægt að njóta alls konar drykkja.
STAÐSETNING
Hótelið er mjög vel staðsett á Benidorm, stutt á Levante ströndina (um 400 metrar) og nokkra mínútna ganga í gamla bæinn. Aðeins þrír kílómetrar í næsta golfvöll, Aqualandia skemmtigarðurinn er í 3km fjarlægð.
AÐBÚNAÐUR Á SUNCONFORT AQUA AZUL
Tvíbýli/einbýli
Svalir/verönd
Baðherbergi
Sjónvarp
Öryggishólf(gegn gjaldi)
Loftkæling
Kynding
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Sundlaugabar
Sólarhringsmóttaka
ATH
Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og gististaða á Benidorm, Albir, Altea og Calpe á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með nokkra daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.
Upplýsingar
Av de Emilio Ortuño, 7, 03501 Benidorm, Alicante, Spánn
Kort