Hótel Los Alamos er góð 4ra stjörnu hótelgisting staðsett á frábærum stað á Benidorm. Stutt í gamla bæinn og á ströndina.
GISTING
Herbergin eru lítil og snyrtileg, búin helstu þægindum eins og sjónvarpi, öryggishólfi og síma. Snyrtileg baðherbergi og svalir á öllum herbergjum.
AÐSTAÐA
Sundlaug og sólbaðsaðstaða í garðinum.
VEITINGAR
Hlaðborðsveitingastaður, bar og kaffitería er á hótelinu.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett í um 450 metrum frá Levante ströndinni og stutt frá gamla bænum á Benidorm.
AÐBÚNAÐUR
Tvíbýli/einbýli
Svalir/verönd
Baðherbergi
Sjónvarp
Öryggishólf(gegn gjaldi)
Loftkæling
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Sólarhringsmóttaka
ATH
Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og gististaða á Benidorm, Albir, Altea og Calpe á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með nokkra daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.
Upplýsingar
Calle Gerona, 7, 03503 Benidorm, Alicante, Spánn
Kort