Hotel Hovima Jardin Caleta er gott 3 stjörnu íbúðahótel staðsett í La Caleta, fallegt þorp staðsett í göngufæri við Del Duque ströndina. Fallegur garður með 3 sundlaugum og nuddpotti. Krakkakúbbur er starfræktur á hótelinu og gott barnaleiksvæði. Val um morgunverð, háft- eða fullt fæði.
GISTING
Íbúðirnar eru með einu svefnherbergi en gestir geta fengið superior íbúðir eða íbúðir með sjávarsýn gegn gjaldi. Superior íbúðirnar eru allar með sjávarsýn eða hliðarsjávarsýn. Íbúðirnar henta vel fyrir fjölskyldur. Í öllum íbúðum er stofa, baðherbergi með hárblásara og eldhúskrókur. Svalir eða verönd er á öllum íbúðum. Athugið að eitt þrep er upp í allar íbúðirnar en gestir geta fengið sérútbúnar íbúðir fyrir hreyfihamlaða en panta þarf þær sérstaklega. Ekki er loftkæling á hótelinu (yfirleitt er ekki loftkæling á 3ja stjörnu hótelum )
AÐSTAÐA
Mjög góður garður með sólbaðsaðstöðu, sundlaug og barnalaug. Báðar sundlaugar eru upphitaðar yfir vetrarmánuðina(nóv-mars). Í garðinum er einnig heitur pottur með sjávarsýn. Frítt internet er í gestamóttöku en gestir geta keypt aðgang að þráðlausu interneti á öðrum stöðum á hótelinu. Gestir hafa aðgang að þvottahúsi(gegn gjaldi). Hægt er að fara í Ping-Pong og stunda aðrar íþróttir á hótelinu og í kringum hótelið. Hægt er að leigja handklæði í gestamóttöku.
AFÞREYING
Á hótelinu er skemmtidagskrá sem heldur uppi fjörinu fyrir börn og fullorðna. Á daginn er hægt að stunda ýmsar íþróttir og reglulega er kvölddagskrá þar sem ýmsir skemmtikraftar troða upp.
VEITINGASTAÐIR
Gestir velja um morgunverð, hálft- eða fullt fæði. Á hótelinu er veitingastaður með hlaðborð, sundlaugabar og „sports-bar“ La Caleta er einstaklega sjarmerandi fiskimannaþorp með fjölda góðra veitingahúsa. Mörg veitingahúsanna sérhæfa sig í sjávarfangi en þar er einnig að finna góða, ekta spænska Tapas-bari og kaffihús.
FYRIR BÖRNIN
Á Jaradin Caleta er leiksvæði fyrir börn, barnalaug og krakkaklúbbur starfræktur. Þar geta börnin leikið sér og kynnst öðrum krökkum undir leiðsögn starfsmanna hótelsins. Á kvöldin er mini-diskó fyrir hressa krakka.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett í La Caleta sem er fallegt þorp staðsett í göngufæri við Del Duque ströndina á Tenerife. Strætisvagn sem gengur inná Playa de las Americas ströndina stoppar í göngufæri við hótelið.
AÐBÚNAÐUR Á HOTEL HOVIMA JARDIN CALETA
Morgunverður/hálft fæði/fullt fæði
Íbúðir með einu svefnherbergi
Gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða(ath. þarf að óska eftir sérstk. íbúð)
Útisundlaug
Nuddpottur
Barnalaug
Barnaklúbbur
Mini-diskó
Leiksvæði
Skemmtikraftar
Hlaðborðsveitingastaður
Sundlaugabar
Poolbar
Svalir
Lítið eldhús
Baðherbergi
Hárblásari
Upphitaðar sundlaugar(yfir vetrarmánuði)
Frítt internet í gestamóttöku
Ping - Pong
Upplýsingar
Avenida Las Gaviotas, 32 38660 La Caleta, Costa Adeje Tenerif
Kort