Hótel Gara Suites er 4 stjörnu íbúðahótel á Playa de las Americas. Hótelið er staðsett alveg við Las Americas golfvöllinn. Umhverfið er notalegt, tvær sundlaugar í garðinum ásamt lítilli grunnlaug fyrir börnin. Tilvalið hótel fyrir golfara.
GISTING
Í boði eru nokkrar týpur af gistimöguleikum:
Duplex með einu svefnherbergi með eða án útsýnis á golfvöll, þar má finna baðherbergi, minibar, sjónvarp, hárþurrku, verönd og frítt wifi.
Íbúð með einu eða tveimur svefnherbergjum, þar má finna baðherbergi, sjónvarp og í flestum íbúðum er eldhúskrókur og snúa þær íbúðir í norður.
Svíta með eða án útsýnis á golfvöll, þar má finna baðherbergi, minibar, sjónvarp, hárþurrku, verönd, öryggishólf og frítt wifi.
AÐSTAÐA
Fínn garður með sólbaðsaðstöðu og tveimur sundlaugum og lítilli grunnlaug fyrir börnin. Einnig er heilsulind á hótelinu og líkamsrækt. Mikið um græn svæði og tré og svo er hægt að láta hressa upp á hárið á hárgreiðslustofu hótelsins. Frítt wifi á öllu hótelinu.
Athugið að næsti súpermarkaður er í töluverðri fjarlægð frá hótelinu og um ca 30 mín tekur að ganga niður á strönd.
VEITINGASTAÐIR
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður en gestir geta valið um morgunverð, hálft fæði, fullt fæði eða allt innifalið. Sundlaugarbar í garðinum þar sem hægt að fá sér smá snarl á meðan sólin skín og í móttökunni er bar/kaffihús.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett á Las Americas golfvellinum á Tenerife. Um 10 mín tekur að komast á Laugarveginn með leigubíl en um 30 mín tekur að ganga á Laugarveginn.
AÐBÚNAÐUR Á GARA SUITES
Morgunverður/hálft fæði/fullt fæði/allt innifalið
Svalir
Baðherbergi
Sjónvarp
Hárþurrka
Sími
Míní-bar
Loftkæling
Útisundlaug
Lítil barnalaug
Sundlaugabar
Hlaðborðsveitingastaður
Bar
Líkamsrækt
Frítt internet
ATH
Upplýsingar
Calle Landa Golf, 2, 38650 Arona, Santa Cruz de Tenerife, Spánn
Kort