Hotel Park Club Europe er frábært 3ja stjörnu hótel á Tenerife. Fallegur sundlaugagarður með hitabeltisgróðri og tveimur sundlaugum. Gestir hafa nóg fyrir stafni og skemmtidagskrá. Allt innifalið. Hentar vel fyrir pör, fjölskyldur og einstaklinga sem vilja njóta sín í sólinni með allt innifalið.
GISTING
Gestir velja um einbýli, tvíbýli eða fjölskylduherbergi. Tvíbýlin bjóða upp á svefnherbergi fyrir tvo, setusvæði með svefnsófa, baðherbergi með sturtu eða baðkari, svölum eða verönd. Fjölskylduherbergin bjóða upp á svefnherbergi fyrir tvo, stofu með tveimur svefnsófum eða koju, baðherbergi með sturtu eða baðkari, svölum eða verönd, sjónvarpi viftu í loftinu, síma, litlum ísskáp og öryggishólfi gegn aukagjaldi. Herbergin eru innréttuð í miðjarðarhafsstíl og máluð hlýlegum litum. Athugið að ekki er loftkæling á herbergjum.
AÐSTAÐA
Mjög fallegur sundlaugagarður undirlagður hitabeltisgróðri og litríkir skrautfiskar synda um tjarnir. Starfsfólkið leggur mikið upp úr því að allir sem vilja hafi nóg fyrir stafni og er öll aðstaða til hreyfingar góð. Í garðinum eru tvær sundlaugar, önnur úr ferskvatni með barnasvæði og hin úr saltvatni með sér svæði fyrir börnin og vatnsrennibrautum. Hægt er að fara í fótbolta, blak, billiard (gegn auka gjaldi) og tennis. Líkamsrækt er á hótelinu ásamt sauni og gufubaði. Ströndin er staðsett í um 400 metra fjarlægð. Frítt wifi í móttökunni en hægt að kaupa wifi aukalega fyrir herbergið. Á hótelinu eru þrír veitingastaðir og þrír barir.
Á hótelinu er ALLT INNIFALIÐ:
Morgunverðarhlaðborða frá 07:30 - 10:00.
Auka morgunverður fyrir þá sem vilja sofa aðeins lengur og borða milli 10:00 - 11:00.
Hádegishlaðborð frá 13:00 - 15:00.
Kvöldverðarhlaðborð frá 18:30 - 21:00.
Frá kl 10:00 - 00:00 eru innlendir áfengir drykkir og óáfengir drykkir innifaldir (drykkir á diskótekinu eru ekki innifaldir).
Snarlhlaðborð frá 11:00 - 18:00 og frá 21:30 - 23:00 (franskar, kjúklinganaggar, pylsur, hamborgarar og fleira).
Ís í boði fyrir gesti frá 10:00 - 17:00.
Þeir drykkir sem eru innifaldir á hlaðborðunum eru vín hússins, vatn, djús, bjór og gos með máltíðum.
AFÞREYING
Nóg er um að vera á Hotel Park Club Europe. Hægt er að fara í vatnaleikfimi, pílukast, borðtennis og líkamsrækt. Gegn gjaldi geta gestir farið í köfunarskóla, leigt fjallahjól eða farið í fjallgöngu með leiðsögumanni. Á kvöldin eru kvöldskemmtanir á vegum starfsfólks m.a. skemmtiatriði, tískusýningar, lifandi tónlist og stundum stendur gestum til boða að taka þátt í skemmtiatriðum.
VEITINGASTAÐIR
Á þessu hóteli er allt innifalið á báðum veitingastöðum hótelsins(sk. all-inclusive - sjá neðar). Park Club Buffet er hlaðborðsstaður sem framreiðir morgun-, hádegis- og kvöldverð fyrir gesti. Á Gavina Grill er áhersla á grillaðan mat og hægt er að sitja úti á stórum svölum.
Innifalinn matur og drykkur: Fullt fæði og drykkir með mat. Innlendir drykkir frá kl. 10-24 - ath. ekki á diskóteki hótelsins.
FYRIR BÖRNIN
Á hótelinu er rekinn krakkaklúbbur fyrir 4-12 ára þar sem börnin skemmta sér við leik á sérstöku leiksvæði. Einnig eru mini disco á kvöldin áður en skemmtidagskráin hefst.
STAÐSETNING
Hótelið er á rólegu svæði við Playa de las Américas, 400 metra frá ströndinni aðeins um 1 km frá miðbænum.
AÐBÚNAÐUR Á HOTEL PARK CLUB EUROPE
Allt innifalið
Útisundlaugar
Hitabeltisgróður í garði
Skemmtidagskrá
Hlaðborðsveitingastaður
Bar
Krakkaklúbbur
Fótboltavöllur
Íþróttir
Svalir
Vifta
Sími
Sjónvarp
Upplýsingar
Avda. Rafael Puig Lluvina, s/n 38660 Playa de las Américas (Arona) Tenerife - Spain
Kort