Labranda Bahia Fanabe & Villas er fallegt 3ja stjörnu íbúðahótel, staðsett á Costa Adeje í 5 mínútna göngufjarlægð frá Del Duque og Fanabe ströndunum. Í nágrenni hótels er að finna verslarnir, veitingastaði, bari og næturklúbba. Fallegur garður og útisundlaugar.
GISTING
Í boði eru bjartar og fallegar íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum sem allar eru með svölum eða verönd. Gisting er aðeins seld með allt innifalið. Kæliskápur er í íbúðinni, gervihnattasjónvarp, frítt Wi-Fi (500 MB) og öryggishólf er hægt að fá gegn aukagjaldi. Baðherbergi eru með sturtu eða baðkari og hárþurrku.
VEITINGAR
Villas veitingastaðurinn er með hlaðborðsveitingar með alþjóðlegum og staðbundnum réttum. Athuga á tímum covid þá eru hólfað niður og bóka þarf borð fyrirfram ( gestamóttaka) Einnig er bar á hæðinni fyrir neðan gestamóttöku og sundlaugarbar.
AÐSTAÐA
Útisundlaugar, sólbekkir og sólhlífar eru í garði hótelsins.
Í NÁGRENNI HÓTELS
Plaza del Duque verslunarmiðstöðin er í 0.5 km fjarlægð; Gran Sur shopping Centre 0.6 km., La Pinta ströndin 1 km., Siam Park vatnsrennibrautargarðurinn 2 km , Aqualand 1.2 km., Papagayo Beach Club í 2,4 km.,
Upplýsingar
Avenida Bruselas, 5-7, 38670 Adeje
Kort