Taghazout

Hilton Taghazout er glæsilegt 5 stjörnu hótel staðsett í taghazout, Marrokkó. Hótelið er staðsett í aðeins 350 m fjarlægð frá Taghazout strönd, hótelið hefur heilsulind með fjöldan allan af meðferðum, tennisvöll og góða sundlaug í garði sínum. Frábært hótel til að njóta sólar og menningar í Taghazout.

Gistiskattur pr dag pr mann euro 3.96 og greiðist beint til hotels.

 

Gisting: 

 

Herbergin eru smekklega hönnuð og hafa öll hellstu þægindi, m.a. sjónvarp, ókeypis wifi og loftkælingu. Einnig hafa öll baðherbergin sturtu eða baðkar.

 

Aðstaða-Afþreying:

 

Á hótelinu er góð sundlaug með sólbaðsaðstöðu, einnig er heilsulind með aðgang að fjöldan allan af heilsumeðferðum, heitum potti og gufubaði, einnig er líkamsrækt, tennisvöllur og hárgreiðslustofa, Ókeypis wifi er á öllu hótelinu fyrir gesti. Fyrir börnin er leikvöllur og krakkaklúbbur. Skemmtidagskrá er á kvöldin. 

 

Veitingar: 

 

2 veitingastaðir eru á Hilton Taghazout, annar þeirra hlaðborðsveitingastaður með alþjóða rétti, hinn hefur a la carte matseðil og marrokóska matargerð. Einnig er bar og kaffihús á staðnum.

 

Staðsetning:

 

Hótelið er staðsett í 350 m fjarlægð frá Taghazout strönd, veitingastaðir og barir utan hótelsins eru í 1.1 km fjarlægð, 15 km í miðbæ, golfvöllur innan 3 km og 35 km í flugvöll.

 

Aðbúnaður:

 

Sturta/baðkar

Sundlaug

Loftkæling

Ókeypis wifi

Sjónvarp

Leikvöllur

Krakkaklúbbur

Heilsulind

Skemmtidagskrá

Hlaðborðsveitingastaður

Veitingastaður

Bar

Kaffihús

Líkamsrækt

Gufubað

Hárgreiðslustofa

Tennis

Heitur pottur

Upplýsingar

Station Touristique, Taghazout Bay Taghazout, 80023, Marokkó

Kort