Parque Santiago III er mjög góð 3ja stjörnu íbúðagisting á besta stað á Playa de las Americas ströndinni. Þetta íbúðahótel er eitt eftirsóttasta hótel Tenerife. Hótelið er byggt í skemmtilegum spænskum stíl og í miðjunni er frábær sundlaugargarður. Mjög fjölskylduvænt hótel á besta stað. Parque Santiago III er fjölskylduvænni hluti hótelsins og hentar fjölskyldum einstaklega vel.
Framkvæmdir
Frá 09.01.2024 - 09.04.2024 verða 8 íbúðir teknar i gegn í Parque Santiago 3. Framkvæmdir verða mánu- til föstudags frá kl. 09:00-17:00, vinna sem krefst hávaða mun ekki hefjast fyrr en kl. 10:00. Einstaka laugardag verður unnið en þá í framkvæmdum sem framkvæma ekki hávaða.
Frá 01.04.2024 - 01.08.2024 verða 21 íbúð og gestamóttakan teknar í gegn á Parque Santiago 3. Framkvæmdir verða mánu- til föstudags frá kl. 09:00-17:00, vinna sem krefst hávaða mun ekki hefjast fyrr en kl. 10:00. Einstaka laugardag verður unnið en þá í framkvæmdum sem framkvæma ekki hávaða. Á þessu tímabili verður gestamóttakan í Parque Santiago IV.
Frá 02.09.2024 - 20.12.2024 verða íbúðir í Wing B teknar í gegn. Framkvæmdir verða mánu- til föstudags frá kl. 09:00-17:00, vinna sem krefst hávaða mun ekki hefjast fyrr en kl. 10:00. Einstaka laugardag verður unnið en þá í framkvæmdum sem framkvæma ekki hávaða.
GISTING
Snyrtilegar íbúðir með einu svefnherbergi eða tveimur. Þær eru ýmist á einni eða tveimur hæðum. Í íbúðunum er eldhús, baðherbergi, stofa með svefnsófa og hægt er að leigja öryggishólf og viftur. Athugið að ekki eru lyftur í öllum byggingum. Íbúðir eru ekki með sundlaugar eða sjávarsýn.
AÐSTAÐA
Hótelgarðurinn er að öllum líkindum einn sá stærsti sem finnst á svæðinu og er bæði mjög fallega hannaður og vel búinn. Í hjarta garðsins er 10.000 fermetra sundlaug auk minni lauga og mjög stórri sólbaðsaðstöðu. Gestir geta keypt aðgang að þráðlausu interneti.
VEITINGAR
Á hótelinu eru átta veitingastaðir þar á meðal spænskur, ítalskur, kínverskur og alþjóðlegur veitingastaður. Einnig eru barir og kaffihús sem bjóða upp á léttan mat, framandi kokteila eða lifandi tónlist og skemmtiatriði.
FYRIR BÖRNIN
Frábært hótel fyrir fjölskyldur með börn. Í garðinum er nýlegt leiksvæði fyrir börn. Þar er að finna 7 vatnsrennibrautir ásamt ótal leiktækja.
STAÐSETNING
Skemmti- og veitingastaðir í öllum regnbogans litum og alþjóðlegar verslanir með ótrúlega fjölbreytt vöruúrval gera hótelið að eftirsóttum stað fyrir þá sem vilja vera í rólegheitum við strönd en jafnframt í göngufæri við iðandi mannlíf.
AÐBÚNAÐUR Á PARQUE SANTIAGO
Íbúðir
Svalir
Lítið eldhús
Baðherbergi
Svefnsófi
Stór sundlaug
Leiktæki
Veitingastaðir
Sundlaugarbar
Lyftur(ekki í öllum byggingum)
Vatnsrennibrautir
Upplýsingar
Avda. Las Américas, 2, Playa de las Américas -38650 Arona
Kort