Be Live Experience Orotava er gott 4 stjörnu hótel staðsett staðsett á NORÐURHLUTA eyjunnar, við Puerto de la Cruz. Um 200m frá ströndinni og Lago Marianez.
Gisting:
Herbergin eru smekkleg og hafa m.a. sjónvarp, síma, ókeypis wifi og loftkælingu. Öll baðherbergin hafa sturtu/baðkar og hárþurrku. Öll herbergi eru með svölum og hægt er að fá sjávar- eða fjallsýn. Einnig er loftkæling, þráðlaust net og gervihnattasjónvarp á herbergjunum.
Aðstaða og afþreying:
Það eru 2 sundlaugar á hótelinu, líkamsrækt, bar, veitingastaður, ásamt því að golfvöllur og tennisvöllur eru nálægt. Kaffihús er á staðnum, ásamt snarlbar, sólahringsmóttaka, bílaleiga og billjarðborð. Einnig er boðið upp á kvöldskemmtun.
Veitingar:
Á hótelinu er veitingastaðurinn La Cascada sem býður upp á hlaðborðsveitingar. Einnig er snarlbar við sundlaugarbakkann. Hægt er að velja á milli morgunverðar, hálfs fæðis eða öllu inniföldu.
Staðsetning:
Hótelið er 40km frá flugvelli, 500m frá Taoro almenningsgarði, 750m frá Plaza Charco-torgi og 200m frá Playa Marianez ströndinni.
Aðbúnaður:
Baðkar eða sturta
Ókeypis snyrtivörur á baðherbergi
Sjónvarp
WiFi
Loftkæling
Minibar
Hlaðborðasveitingastaður
Kaffihús
Bar
Skemmtidagskrá
2 Sundlaugar
Líkamsrækt
Stutt frá strönd
Bílaleiga
Öryggishólf
Aðstaða fyrir hreyfihamlaða
Athugið að fararstjórar Tenerife eru staðsettir á suðurhluta eyjunnar en hægt er að ná í fararstjóra í þjónustusíma frá 09-17 og neyðarsíma allan sólarhringinn.
Upplýsingar
Av. Aguilar y Quesada, 3, 38400 Puerto de la Cruz Santa Cruz de Tenerife Spánn
Kort