Hótel Serenella er gott 3* hótel í Sirmione með sundlaug, 50 metrum frá Catullo Thermal Spa heilsulindinni. Umkringt ólífutrjám og fallegu útsýni.
Gisting:
Herbergin eru með loftkælingu og hægt er að bóka svítur sérstaklega. ATH að ókeypis wifi er ekki á herberginu.
Aðstaða og afþreying:
Fallegur garður þar sem hægt er að njóta útsýnis yfir vatnið yfir morgunmatnum. Það er lítil bryggja að vatninu þar sem aðgangur er að vatninu og einkaströnd.
Veitingar:
Mjög góður morgunmatur sem hægt er að njóta í garðinum, bar og herbergisþjónsusta.
Staðsetning:
Hótel Serenella er á mjög góðum stað við vatnið í hjarta bæjarins Sirmione.
Aðbúnaður:
Útisundlaug
Ókeypis wifi á almennigssvæðum
Herbergisþjónusta
Bar
Einkaströnd
Morgunverður
ATH vinsamlegast kynnið ykkur vel samgöngur til og frá Verona. Ef þið eruð ekki á bíl er nauðsynlegt að athuga almenningssamgöngur milli Garda og Verona.
Upplýsingar
Via Punta Staffalo, 1 25019 - Sirmione
Kort