Strandferð til Balí
Balí er sönn paradís á jörðu og hefur upp á að bjóða hvítar strendur, tæran sjó og iðandi mannlíf - Komdu og upplifðu þetta ævintýri með okkur!

Dagsetningar í boði
23. feb - 7. mars uppselt
24. mars - 6. apríl uppselt
14. - 28. apríl (páskar)
10. - 24. júní - fjölskylduferð!
Flug: Aðeins einn flugmiði alla leið og töskurnar með! Lágmarks biðtímar eru í millilendingum
Hvar: Dvalið við Seminiyak ströndina. Upplifðu það besta sem Balí hefur uppá að bjóða á besta stað á eyjunni. Stutt í alla afþreyingu og úrval veitingastaða, skemmtistaða og verslana.
Hótel: Val um mismunandi hótel með morgunverði.
Hápunktar ferðarinnar
Paradísareyjan Balí bíður eftir þér með ótrúlega upplifun, ólíka öllu öðru. Hamingjusamir heimamenn, endalaus sól og hvítar strendur.
Ferðin er fyrsta flokks og hvort sem þú vilt slappa af og hugleiða eða halda á vit ævintýranna þá eru frábærar dagsferðir í boði.
• Sigling, menning og skoða hof!
• Fjórhjólaferð, flúðasigling eða jóga
• Upplifðu ótrúlega náttúru
• Samvera með ævintýragjörnum Íslendingum og/eða lífsglöðum heimamönnum.
Viltu vita meira um Balí ferðirnar?
Sendu póst á serferdir@sumarferdir.is
dásamleg upplifun - menning - köfun - spa - hjólaferð - strandpartý - sörf - skútusigling
endalaus ævintýri...
Seminyak er einn fremsti og vinsælasti strandbær Balí. Í upphafi ferðaþjónustu á Balí voru það strandstaðirnir Kúta og Sanúr sem byggðust fyrst upp og hefur Sanúr haldið sínum sjarma með sterkri tengingu við sögu og fortíð eyjunnar þar sem hægt er að upplifa og vera í góðri nánd við menningu og mannlífið. Kúta varð stuð og djammstaður eyjunnar en norðan við Kúta byggðist upp nýr elegant bær sem er Seminyak.
Í dag státar Seminyak af því að vera fágaður stuðstaður þar sem flottustu veitingastaðir og hótel eyjunnar eru í bland við flottustu verslanirnar og allstaðar er líka að finna fjöruga bari, matvöruverslanir, húðflúrstofur og alla mögulega aðra þjónustu.
Íslenskur fararstjóri: Adolf Jónsson er með víðtæka reynslu af fararstjórn um víða veröld og hefur síðastliðin ár verið búsettur í Mexíkó og leitt fjölda ferða um Yucatánskaga, Playa del Carmen og Cancun auk annara landa í Mið- og Suður Ameríku. Adolf ferðaðist víða um Kína meðan hann dvaldi við nám í Shanghai og nýtti allar frístundir til að bæta við sig þekkingu á álfunni.Leiðsögumaður: Ayu Artini hefur tekið á móti hundruðum íslendinga á Balí síðustu ár og hefur starfað í ferðaþjónustu síðan hún útskrifaðist sem ferðamálafræðingur. Reynsla hennar og þekking á Balí er djúp og mikil og hún veit hvernig á að koma til móts við væntingar og drauma íslenskra ferðalang.Saman eru Ayu og Adolf hin fullkomna móttökusveit og varðmenn um frábæran viðgjörning og dásamlega vist á Balí.
Skoða hótel í bókunarvél
Hópurinn þinn að spá í Balí?
Sendu okkur póst - > serferdir@sumarferdir.is
Boutique hótel



THE HAVEN ***
The Haven er traustur og hagstæður kostur á besta stað í Seminyakbænum. Það er rétt um 5 mínútna gangur á ströndina þar sem hóteli er með eigin strandklúbb/Beach Club.
Á hótelinu er góður veitingastaður og heilsulind en í nágrenni hótelsins eru fjölmargir góðir veitingastaðir, verslanir og ýmiss þjónusta.
GRAND MERCURE ****
Grand Mercure hótelið í Seminyak er frábært afdrep í miðjum bænum með alla þjónustu og myndarlegt sundlaugasvæði en um leið umkringt ys og þys bæjarins með úrvali skemmtistaða, veitingastaða og allri almennri þjónustu utan hótelveggjanna.
Hótelið er steinsnar frá ströndinni eða í rétt um mínútu göngufjarlægð. Góður veitingastaður og skemmtilegur bar prýða hótelið auk heilsulindar og líkamsræktar.
INDIGO *****
Fjöldi dásamlegra veitingastaða, kaffihúsa og bara. Heilsulindin er himnesk og sundlaugasvæðið og ströndin engu minni himnasæla.
Utan hótelsins er að finna marga af flottustu og bestu veitinga- og skemmtistöðum Seminyak.
DAGSFERÐIR Á BALÍ

Sigling til Nusa Lembongan
Sigling til Nusa Lembongan eyju hefur verið mikilvægur partur af dagsferðum okkar. Siglt er á myndalegri tvíbytnu/Catamaran sem liggur sérlega vel í sjó og býður uppá þægindi og ljúfa vist. Á ferðinni er stoppað á þremur stöðum fyrir þá sem langar að snorkla og sjá fallegt sjávarlíf við strendur Nusa Lembongan og Nusa Penida eyjann. Farið verður í stutta fenjasiglingu og hádegisverður snæddur í strandarklúbb.
Menningaferð kringum Úbúd
Ein vinsælasta dagsferð okkar er menningaferð í kringum fjallabæinn Úbúd. Það er margt á dagskrá í þessari stóru ferð þar sem við kynnumst hofum og höllum í Giyanarkonungsdæminu, skoðum hrísgrjónaekru, komum við á markaði og smökkum „Luwak“ kaffið sem er sagt vera dýrasta kaffi í heimi. Tampak Siring hofið verður á vegi okkar og þar gefst fólki tækifæri til að þvo af sér syndirnar í heilagri laug og þiggja blessun hindúa prests.
Dagsferð til Uluwatu
Uluwatu er fræg fyrir hvítar strendur, sögufræg hof og stórbrotnar aðstæður fyrir heimsklassa brimbrettamennsku. Þessi “sofandi” partur af eyjunni er á hraðri uppsiglingu að vera einn vinsælasti áningastaður ferðamanna. Hin fræga Suluban er heimsótt þar sem þið fáið tækifæri að sóla ykkur og sjá “surf”menningu Balí. Einnig er hið mikilfenglega Uluwatu hof heimsótt og notið Kecak danssýningar um kvöldið.
FLEIRI FERÐIR!

Fjórhjólaferð um gersemar Balí
Upplifðu allt það fallegasta sem Balí hefur uppá að
bjóða og það á fjórhjóli með frábærri stemningu. Keyrt
verður í gegnum hrísgrjónaakra, fossa og annað
skemmtilegt sem gaman verður að segja frá þegar heim
er komið.

SNORKLAÐ KÓRALRIF

River Rafting um skóga Úbúd
Það kemur ekki á óvart hversu vinsælar flúðasiglingar í Agung ánni hafa verið því þetta er frábært prógram sem hefur verið vinsælt hjá gestum okkar og vitaskuld höldum við hefðinni áfram. Mælum með fyrir alla þá sem elska hreyfingu, útiveru og hlátur.

SURFAÐ Á BALÍ

Menning, mannlíf og náttúra Balí
Þessi ferð opinberar hjarta Balí sem slær bjartast og skýrast í fjallabænum Úbúd sem er miðstöð lista- og menningarlífs balíbúa. Skógurinn er þykkur, gljúfri djúp, hrísgrjónastallarnir prúðir, hofin seiðandi og dularfull og listmuna- og skranmarkaðirnir ævintýralegir.

"MARINE WALK"
KORT AF BALÍ

Sólareyjan Balí í Indónesíu svíkur engan. Hvort sem þú vilt slappa af og hugleiða, taka þátt í göngutúrum og hjólaferðum, eða bara að liggja og sóla þig. Balí tilheyra nokkrar nærliggjandi eyjur á borð við Nusa Penida, Nusa Lembongan og Nusa Ceningan. Balí er staðsett á vesturhluta þessa eyjaklasa með Java í vestri og Lombok í austri. Höfuðborgin, Denpasar, er staðsett á suðurhluta eyjarinnar. Á Balí búa um fimm milljónir manna í um 600 þorpum og bæjum eyjunnar.
Innifalið í verði:
- Flug frá Íslandi til Balí fram og til baka.
- Flugvallagjöld og skattar.
- Ferðataska og handfarangur.
- Íslensk ferðastjórn og innlendir leiðsögumenn.
- Gisting með morgunverði.
- Akstur á milli flugvallar og hótela.
Balí hefur einkar þægilegt loftslag, sólin er gjöful, náttúran ótrúleg og menningin fjölbreytt og spennandi. En það sem stendur upp úr á Balí er lífsgleðin sem þar ríkir og fólkið sem býr á eyjunum. Balí er eins og lifandi póstkort, Indónesísk paradís.
Þar má sjá sólina rísa upp af fínum hvítum sandströndum, kafa meðfram kórölum eða um flök orrustuskipa frá seinni heimsstyrjöldinni. Inni í landi er frumskógur með gömlum hofum og fjölbreyttu dýralífi.
Flug & flugtímar*
Brottför frá Keflavík flogið með ICELANDAIR til Osló/Kaupmannahöfn og áfram með EMIRATES til Dubai og svo til Balí.
Brottför frá Balí EMIRATES í gegnum Dubai til Osló/Kaupmannahöfn og síðan með ICELANDAIR heim.
*lágmarksbiðtími milli flugvéla - einn flugmiði :)
Við komu til Balí er ekið til strandbæjarins Seminyak sem er einn fremsti og vinsælasti strandbær Balí.
Þrátt fyrir fjölda ferðamanna sem sótt hafa eyjuna heim á síðustu árum er Bali eftir sem áður dásamlegur töfrastaður sem varðveitir hindúískan menningararf sinn, trúarathafnir og heilög hof. Umgjörð Bali er fullkomin, þægilegt loftslag þar sem sólin og náttúran kallast á. Menningin er fjölbreytt og spennandi og enginn skortur er á líflegum kaffihúsum, verslunum og notalegum þorpum með vinalegum íbúum.
Tékklisti fyrir Balí:
- Sundfatnaður og sólarvörn!
- Vegabréf (þarf að vera í gildi 6 mánuðum eftir heimkomu).
- Peningar / Greiðslukort.
- Ökuskírteini.
- Lyfseðilsskyld lyf.
- Hleðslutæki.
- Síminn!
Skelltu þér með til Balí
Skoða verð í bókunarvél
Viðskiptavinir geta valið hvernig þeir vilja greiða fyrir ævintýraferðina til Balí.
- Staðfestingagjald 100.000 á mann, eftirstöðvar greiðast eigi síðar en 10 vikum fyrir brottför
- Greiðslukort - ein greiðsla
- Greiðslukort - skipta greiðslu á fleiri en eitt mismunandi greiðslukort (á ekki við um tímabil)
- Raðgreiðslusamningur
- Fjórar jafnar vaxtalausar greiðslur (3,5% lántökugjald að auki)
- Kortalán án vaxta (50% út, og 50% skiptast á næstu 3 mánuði auk 3,5% lántökugjalds)
- PEI - dreifing á greiðsluseðla til allt að 6 mánaða
- Netgíró þegar bókað er hjá sölumanni Sumarferða sími 514 1400 eða í Hlíðasmára 6, 200 Kópavogi