Krít einstakar strendur og fallegt hafið
Það yndislega við Krít er að daglegt líf eyjaskeggja er nær ósnortið af ferðamönnum. Krítverjar eru stoltir af sínu og taka ferðamönnum opnum örmum um leið og þeir bjóða þér að njóta þess besta sem eyjan hefur upp á að bjóða. Á Krít er matur í hæsta gæðaflokki, ferskur fiskur og kjöt, grænmeti með hágæða ólifuolíu, gott vín og ostar sem bráðan í munni.
Flogið er til Chania. Chania er fyrrum höfuðstaður Krítar og önnur stærsta borg eyjunnar. Gamli bæjarhlutinn innan borgarmúranna ber svip af Feneyjum og Tyrklandi með þröngum götum og byggingum frá fyrri öldum. Hjarta borgarinnar er gamla höfnin, umkringd líflegum og skemmtilegum börum þar sem er líf og fjör allan sólarhringinn, sérstaklega á sumrin.
Andrúmsloftið er heillandi og staðurinn laðar til sín bæði íbúa og erlenda ferðamenn. Upp frá höfninni hlykkjast götur með fjölda verslana þar sem seldir eru minjagripir, matur og vín, skartgripir og handunnir listmunir. Út með ströndinni er að finna óviðjafnanlega sjávarréttastaði sem heimamenn flykkast á þegar þeir vilja gera sér glaðan dag.
Við strandlengjuna milli Chania og Platanias er byggðin samfelld og þéttist litlum bæjarkjörnum meðfram ströndinni. Þar eru gullnar strendur, kristaltær sjór, nýtísku hótel og fjölskyldureknar íbúðagistingar.
Strandþorpið Agia Marina er staðsett aðeins 9 km vestur af Chania. Það er einn vinsælasti ferðamannastaðurinn í Chania. Strandlengja Agia Marina er frábær með yndislegum sandströndum. Agia Marina og Platanias eru svo nálægt að þú getur vart sé skiptinguna. Platanias hefur kúltúr og fjörugt bæjarlíf en fullt af litlum flóum, þar sem þú getur synt í og slakað á. Í austurhluta ströndarinnar er töfrandi sandströnd sem nær til Stalos.
Kato Doratso var eitt sinn aðeins þorp í hlíðunum en nær nú alveg niður að strönd. Kolymbari er rólegt sjávarþorp með meira hefðbundinn fílíng og frábært sjávarfang. Gerani er lítið friðsælt svæði, gott fyrir göngur. Almyrida falleg gyllt strandlengjan, veitingarstaðir og meiri rólegheit í bland við afþreyingu eins og surf og köfun.
Agii Apostoli er í 4 km fjarlægð frá borginni Chania, fallegt strandþorp en þar eru fjórar aðskildar strendur, hver í sínum litlu flóa. Strendurnar eru með tært og tiltölulega grunnt vatn, hentugur fyrir barnafjölskyldur.
Gistingar á Krít
Cavo Spada Luxury & Liesure Resort 5 stjörnu hótel staðsett við strönd vestan megin við Chania-flóa stutt frá fallega þorpinu Kolymbari. Hótelið býður upp á 150 herbergi í ýmsum flokkum.
Krakkaklúbbur, skemmtidagskrá, góð aðstaða fyrir hreyfingu og spa. Sundlaugar og góð sólbaðsaðstaða. Gott fjölskylduhótel
Porto Platanias Village er frábært 4 stjörnu íbúðahótel og góður kostur fyrir fjölskyldufólk og stórfjölskyldur. Það er krakkaklúbbur á þessu hóteli. Hótelið býður upp á fjölbreyttar einingar frá stúdíó til 2ja herbergja íbúða. Porto Platanias Village er eins og lítið þorp á einstaklega góðum stað í hjarta Platanias bæjarins, stutt frá Agia Marina ströndinni.
Atlantica Kalliston Resort er glæsilegt 4 stjörnu hótel staðsett meðfram stórkostlegu Agioi Apostoloi ströndinni. Hótelið býr yfir rólegu andrúmslofti, fáguðum stíl, frábærum veitingastöðum og óviðjafnanlegu útsýni yfir hafið.
Hér er heilsulind, líkamsrækt og fjölbreytt afþreying. Hótelið býður upp á herbergi í ýmsum flokkum.
Hótelið er eingöngu fyrir 16+