Alicante: borg & sól
Alicante er á Costa Blanca ströndinni - flogið er til Alicante flugvallar.
Borgin Alicante er gullfalleg spænsk borg sem iðar af mannlífi. Borgin sem er staðsett í hjarta Costa Blanca héraðsins á Spáni er höfuðborg héraðsins og á sér langa og ríka sögu. Miðbærinn er töfrandi og í borginni ríkir mikil matar- og vínmenning sem endurspeglast í fjölda framúrskarandi veitingahúsa á svæðinu.
Borgin sameinar því bæði menningu og sólarfríið sem fjölskyldan þráir. Við hana liggur frábær sjö kílómetra löng strönd og eru hótelin okkar staðsett nálægt ströndinni. Það er því tilvalið að eyða deginum á sólbekk eða að ærslast á ströndinni og ráfa í iðandi mannlífinu í miðborginni þegar fer að kvölda.
COSTA BLANCA SVÆÐIÐ
- Albír
- Alicante
- Altea
- Benidorm
- Calpe
- Flogið til Alicante (ALC)
- Flugtími +/-4 klst.
- Akstur til Alicante 10 mín.
- Tungumál: Spænska
- Gjaldmiðill: Evra
- Sumarhiti: 28+°C
- Vetrarhiti: 16+°C
- Milt og gott vor og haust
- Tími: +2 sumar +1 vetur
- Landkóði: +34
Töfrandi menningarborg
Svæðið í kringum Alicante hefur verið í byggð í meira en 7000 ár. Sumar af elstu byggðunum eru í hlíðum Mount Benacantil fjallsins, sem gnæfir yfir borgina. Kastalinn Santa Barbara stendur í hlíðum fjallsins í 166 metra hæð, hann er upprunalega frá 8. öld og hefur verið vel við haldið. Kastalinn hefur verið opinn almenningi í rúm 50 ár og er það mikil upplifun að heimsækja hann. Þar er líka stórbrotið útsýni yfir borgina og Costa Blanca svæðið allt. Gamla bæinn í Alicante ætti enginn að láta framhjá sér fara en það má segja að sál borgarinnar sé einmitt að finna þar, í þröngum götum og litlum húsum. Götur gömlu borgarinnar taka svo stakkaskiptum þegar kvöldar og næturlífið lifnar við.
Í bænum er að finna fjölda áhugaverðra safna, sögulegar minjar, skemmtilega markaði að hætti innfæddra og heimsþekktar verslanir. Þar er líka hægt að skoða margar fallegar minjar frá tímum máranna. Dómkirkjan í Alicante, San Nicolas, er mjög falleg og virkilega þess virði að taka sér hlé frá sólbökun einn eftirmiðdag og leggja leið síðan þangað.
Seiðandi sólafrí á Alicante
Á Alicante er að finna einstaklega fallegar strendur þar sem fjölskyldan getur átt góðar stundir. Við strandlengjuna er að finna ótal spennandi bari og veitingastaði sem tilvalið er að sækja heim. Ramblan er göngugata með góðu úrvali verslana eins og El Corte Ingles, Zara, H&M okkar allra og fleiri góðar verslanar. Þar er líka að finna spennandi veitingastaði með gómsætum kræsingum frá öllum heimshornum. Við mælum sérstaklega með því að fólk láti ekki gómsætt tapas að hætti spánverja framhjá sér fara.
Tabarca eyjan
Stutt frá Alicante er Tabarca eyjan og þar er tilvalið að eyða degi eða eftirmiðdegi. Á eyjunni er lítill bær með litlum, lágreistum húsum. Eyjan býr yfir stórbrotinni náttúrufegurð og fallegri strönd þar sem tært hafið glitrar, svo er líka hægt að snorkla í aðgrunnu hafinu. Bátur til Tabarca eyjunnar fer frá höfninni í Alicante og kostar miðinn um 20 evrur.
Á Alicante er fjölbreytt úrval gististaða þannig allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Fjörug hótel með stórum sundlaugum hæfa kannski barnafjölskyldum betur á meðan pör með ung börn njóta sín betur við rólegan sundlaugarbakka eða nærri ströndinni.
Hér er áhugaverður vefur um allt það helsta sem er að gerast á Alicante : www.alicanteturismo.com
Gistingar á Costa Blanca svæðinu
Paraiso Centro er snyrtilegt, einfalt og mjög vel staðsett íbúðagisting stutt frá gamla bænum í Benidorm. Einfaldar, snyrtilegar og rúmgóðar íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, baði, stofu og svölum sem snúa út í garð. Stutt er í alla þjónustu, t.d. matvörumarkaðinn Mercadona, banka og verslanir.