Agadir Marokkó: strönd & borg
Agadir er vinsælasti sólstrandarstaður í Marokkó. Strandlengja Agadir flóa er glæsileg og ein af mörgum kostum þess að heimsækja Agadir. Borgin hefur upp á margt skemmtilegt að bjóða. Marokkó er þekkt fyrir sína markaði, einkum í Agadir, Souk Al-Ahad, sem er upplifunarinnar virði. Agadir er einnig þekktur fyrir að vera fjölskylduvænn áfangastaður. Íbúar Agadir eru hátt í ein milljón, enda ein vinsælasta borg Marrokkó bæði fyrir heimamenn og ferðalanga. 3 tungumál eru töluð í Agadir, algengust er tashelhit, á eftir koma svo arabíska og franska. Sahara eyðimörkin er vel þekkt en yfir landinu gnæfa einnig hin tignarlegu Atlas fjöll. Veðurfarið yfir vetrarmánuðina yndislega hlýtt og notalegt. Menning og saga landsins aldagömul og sést hún allt umkring í Agadir. Upplifðu menningu, sögu, sólarslökun og meira í þessari frábæru ferð. Tilvalin upplifun fyrir fjölskyldur. |
||
|